Þjóðskrá01. október 2019

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum - október 2019

Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 1.904 á tímabilinu frá 1. desember 2018 til 1. október sl. Þetta er hlutfallsleg fjölgun upp á 1,5%.

Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 1.904 á tímabilinu frá 1. desember 2018 til 1. október sl. Þetta er hlutfallsleg fjölgun upp á 1,5%. Þau sveitarfélög sem næst komu voru Kópavogur með 801 íbúa eða 2,2% fjölgun og Mosfellsbæ með 508 íbúa eða 4,5% fjölgun.

 

Hlutfallslega mest fjölgun í Borgarfjarðarhreppi

Þegar horft er til alls landsins þá fjölgaði íbúum Skorradalshrepps hlutfallslega mest eða um 10,3%, um 6 íbúa eða úr 58 í 64 íbúa.

Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Langanesbyggð, um 4,7% og í Hvalfjarðarsveit um 4,5%.

Þá fækkaði íbúum í 16 af 72 sveitarfélögum landsins frá 1. desember síðastliðinn

Fjölgar í öllum landshlutum

Lítilsháttar fjölgun hefur orðið í öllum landshlutum frá 1. desember síðastliðnum.

Hlutfallslega mest fjölgun varð á Suðurlandi. Þar fjölgaði um 855 íbúa eða 2,9%. Íbúum höfuðborgarsvæðisins fjölgaði um 3.938 eða 1,7% og íbúum á Suðurnesjum fjölgaði um 681 eða 2,5%.

Íbúum landsins hefur fjölgað um 5.923 manns eða 1,7% á ofangreindu tímabili. Þann 1. október sl. voru 362.594 einstaklingar skráðir með búsetu hér á landi samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum þann 1. október sl. og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2017 og 2018.  

Tölurnar byggja á skráningu einstaklinga í sveitarfélög samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.

Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar