Þjóðskrá15. október 2019

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi í október 2019

Alls voru 48.287 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi þann 1. október 2019 og hefur þeim fjölgað um 3.417 frá 1. desember 2018 eða um 9,4%. Á sama tíma fjölgaði íslenskum ríkisborgurum sem eru búsettir hér á landi um 0,6%.

Flestir erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi eru frá Póllandi eða 20.370 og 4.542 einstaklingar eru með litháískt ríkisfang.

Pólskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 6,1% frá 1. desember sl. eða um 1.180 frá 1. desember 2018 og litháískum ríkisborgurum um 448 á sama tímabili eða um 10,9%. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2017, 1. desember 2018 og þann 1. október  2019.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi.

Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar