Þjóðskrá16. október 2019

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í september 2019

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 199,6 stig í september 2019 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,8% frá fyrri mánuði.

Mynd sem sýnir þróun vísitölu leiguverðs síðastliðna 12 mánuði

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 199,6 stig í september 2019 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,8% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,8% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 5,3%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali. Einnig er hægt að nálgast sömu gögn á talnaefnissíðu ÞÍ.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í september 2019.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 957 samningar, sem þinglýst var í september 2019. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í september 2019 eru því unnar upp úr 752 leigusamningum sem þinglýst var í september 2019.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í september 2019 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

4591

3396

2746

2343

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

3811

2964

2536

2242

Kópavogur

3710

2756

2498

2292

Garðabær og Hafnarfjörður

3575

2922

2556

2290

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

4448

3091

2453

2348

Breiðholt

3745

3009

2611

1924

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

2598

2388

-

Suðurnes

3266

2722

1866

1571

Vesturland

-

2099

1820

1456

Vestfirðir

-

1823

1824

-

Norðurland nema Akureyri

-

1524

1582

1140

Akureyri

2987

2517

1889

1748

Austurland

-

-

1539

-

Suðurland

3206

2253

1973

1366

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar