Þjóðskrá22. október 2019

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í september 2019

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Kaupverð og fasteignaverð á atvinnuhúsnæði síðastliðna 12 mánuði eins og skráð í Kaupskrá ÞÍ

Mynd sýnir samanburð á kaupverði og fasteignamati atvinnuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu m.v. skráningu í kaupskrá síðastliðna 12 mánuði

 

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í september 2019 var 35 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 2.424 milljónir króna.

Þar af voru 23 kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 1.848 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 1.084 milljónir króna.

Á sama tíma var 36 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 2.025 milljónir króna.

Þar af voru 18  kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 540 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 405 milljónir króna.

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar. Einnig er hægt að nálgast gögnin á talnaefnissíðu ÞÍ.

Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar