Þjóðskrá06. nóvember 2019

Skráningar í trú- og lífsskoðunarfélög í nóvember 2019

Alls hefur skráðum í Þjóðkirkjuna fækkað um 1.243 manns á tímabilinu frá 1. desember á síðasta ári til 1. nóvember.

Alls hefur skráðum í Þjóðkirkjuna fækkað um 1.243 manns á tímabilinu frá 1. desember á síðasta ári til 1. nóvember.  Nú eru 231.429 einstaklingar skráðir í  Þjóðkirkjuna.

Fjölgun mest í kaþólska söfnuðinum og í siðmennt

Á sama tímabili fjölgaði í kaþólska söfnuðinum um 602 manns eða um 4,3% og í Siðmennt um 526 manns eða um 18,7%. Aukning var einnig í Ásatrúarfélaginu eða um 255 manns sem er 5,8% fjölgun.

Nýtt trúfélag kemur fram og það fimmtugasta!

Nýtt trú- og lífsskoðunarfélag var skráð í síðasta mánuði, demantsleið búddismans og eru nú skráðir níu einstaklingar í trúfélagið.  Nú eru skráð trú- og lífsskoðunarfélög alls 50 talsins og eru 15 þeirra með yfir 500 meðlimi.

Alls voru 25.785 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. nóvember sl. og fjölgaði þeim um 1.022 frá 1. desember sl. eða um 4,1%.  Alls eru því 7,1% landsmanna utan trú- og lífsskoðunarfélaga.

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélög þann 1. nóvember sl.  og samanburð við tölur frá 1. desember 2017 og 2018.

Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar