Þjóðskrá14. nóvember 2019

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í október 2019

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í október 2019 var 988. Heildarvelta nam 50,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 51,4 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 38,3 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 10,7 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,7 milljörðum króna.

Fasteignavelta á höfuðborgarsvæðinu undanfarna 13 mánuði

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í október 2019 var 988. Heildarvelta nam 50,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 51,4 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 38,3 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 10,7 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,7 milljörðum króna.

Þegar október 2019 er borinn saman við september 2019 fjölgar kaupsamningum um 39,5% og velta eykst um 34,5%. Í september 2019 var 708 kaupsamningum þinglýst, velta nam 37,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 53,3 milljónir króna.

Þegar október 2019 er borinn saman við október 2018 fjölgar kaupsamningum um 56,1% og velta eykst um 48,5%. Í október 2018 var 633 kaupsamningum þinglýst, velta nam 34,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 54 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Makaskiptasamningar voru 11 í október 2019 eða 1,2% af öllum samningum. Í september 2019 voru makaskiptasamningar 14 eða 2,1% af öllum samningum. Í október 2018 voru makaskiptasamningar 9 eða 1,5% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

 

Tafla 1. Samanburður á september 2019 og október 2019

September 2019

Október 2019

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

26.426

557

38.338

813

45,1%

46,0%

Sérbýli

9.102

120

10.703

137

17,6%

14,2%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.216

31

1.739

38

-21,5%

22,6%

Samtals

37.744

708

50.781

988

34,5%

39,5%

 

Tafla 2. Samanburður á október 2018 og október 2019

Október 2018

Október 2019

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

22.346

492

38.338

813

71,6%

65,2%

Sérbýli

8.065

102

10.703

137

32,7%

34,3%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

3.775

39

1.739

38

-53,9%

-2,6%

Samtals

34.186

633

50.781

988

48,5%

56,1%

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Október 2018
September 2019
Október 2019
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
594
677
950
59,9%
40,3%
Makaskipti eða lausafé
9
14
12
33,3%
-14,3%
Makaskipti
9
14
11
22,2%
-21,4%
Lausafé
0
0
1
-
-
Hlutfall makaskipta
1,5%
2,1%
1,2%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel. Einnig er hægt að nálgast sömu upplýsingar á talnaefnissíðu ÞÍ.

Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar