Þjóðskrá19. nóvember 2019

Stofnun hjúskapar og lögskilnaðar í október 2019

Samkvæmt skráningu í þjóðskrá stofnuðu 246 einstaklingar til hjúskapar í október sl. en 119 einstaklingar skildu.

Samkvæmt skráningu í þjóðskrá stofnuðu 246 einstaklingar til hjúskapar í október sl. en 119 einstaklingar skildu.

Hjúskapur

Af þeim 246 einstaklingum sem stofnuðu til hjúskapar í síðasta mánuði gengu 100 í hjúskap hjá sýslumanni eða 40,7%, 112 giftu sig í Þjóðkirkjunni eða 45,6%, og 30 einstaklingar gengu í hjúskap í öðru trúfélagi eða 12,2% og loks gengu 4 einstaklingar í hjúskap erlendis.

Skilnaðir

Alls skildu 119 einstaklingar. Þar af gengu 118 frá lögskilnaði sínum hjá sýslumanni.

Hér má sjá lista yfir fjölda einstaklinga sem gengu í hjúskap og skildu á árunum 1990 til 2019.

Ath. tölurnar byggjast á tilkynningum um lögskilnað og stofnun hjúskaps til Þjóðskrár Íslands.

Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar