Þjóðskrá20. nóvember 2019

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í október 2019

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 199,1 stig í október 2019 (janúar 2011=100) og lækkar um 0,3% frá fyrri mánuði.

Mynd sem sýnir þróun vísitölu leiguverðs síðastliðna 12 mánuði

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 199,1 stig í október 2019 (janúar 2011=100) og lækkar um 0,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,6% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 3,5%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjaliEinnig er hægt að nálgast sömu gögn á talnaefnissíðu ÞÍ.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í október 2019.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 957 samningar, sem þinglýst var í október 2019. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í október 2019 eru því unnar upp úr 752 leigusamningum sem þinglýst var í október 2019.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í október 2019 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

4955

3158

2805

2500

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

4510

3216

2571

2367

Kópavogur

3722

2817

2398

2445

Garðabær og Hafnarfjörður

4017

2959

2770

2241

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

4131

2793

2419

2126

Breiðholt

-

2651

2374

2155

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

2508

2433

2169

Suðurnes

4089

2509

1833

1576

Vesturland

-

1995

1738

1185

Vestfirðir

-

-

940

-

Norðurland nema Akureyri

2140

1588

1346

1203

Akureyri

3610

2443

2080

1603

Austurland

-

-

1476

1041

Suðurland

-

2263

1620

1803

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar