Þjóðskrá22. nóvember 2019

Mannfjöldabreytingar í þjóðskrá á 3. ársfjórðungi 2019

Alls voru skráðir 1.239 nýfæddir einstaklingar á 3. ársfjórðungi ársins, 2.295 nýskráðir erlendir ríkisborgarar og 101 nýskráðir Íslendingar en það eru íslensk börn sem fædd eru erlendis.

Alls voru skráðir 1.239 nýfæddir einstaklingar á 3. ársfjórðungi ársins, 2.295 nýskráðir erlendir ríkisborgarar og 101 nýskráðir Íslendingar en það eru íslensk börn sem fædd eru erlendis.  Alls var tilkynnt um 554 andlát.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum var á fyrstu þremur ársfjórðungum ársins 3.316 nýfæddir einstaklingar skráðir í þjóðskrá sem er aukning frá sama tíma í fyrra um ríflega 5,7%.

Samdráttur var hins vegar í skráningu erlendra ríkisborgara. Á ofangreindu tímabili voru 6.270 erlendir ríkisborgarar skráðir til landsins en á sama tíma í fyrra voru þeir 8.895. þetta er samdráttur upp á 29,5%.

Hér má sjá fjölda breytinga eftir helstu flokkum eftir ársfjórðungi frá 2016. 

Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar