Þjóðskrá04. desember 2019

Skráningar í trú- og lífsskoðunarfélög í desember 2019

Alls hefur skráðum í Þjóðkirkjuna fækkað um 1.518 manns frá 1. desember á síðasta ári.

Alls hefur skráðum í Þjóðkirkjuna fækkað um 1.518 manns frá 1. desember á síðasta ári.  Nú eru 231.154 einstaklingar skráðir í  Þjóðkirkjuna.

Fjölgar mest í siðmennt

Á sama tímabili fjölgaði í Siðmennt um 655 manns eða um 23,3%. Aukning var einnig í kaþólsku kirkjunni um 620 manns sem er fjölgun um 4,4%.

Fækkun hefur orðið í 22 trú- og lífsskoðunarfélögum. Mest hlutfallsleg fækkun var í zuism eða um 23%.

Fjölgar í ótilgreindum skráningum og þeim sem standa utan trú- og lífsskoðunarfélögum

Alls voru 26.023 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. desember sl. og fjölgaði þeim um 1.260 frá 1. desember sl. eða um 5,1%.  Alls eru 7,2% landsmanna utan trú- og lífsskoðunarfélaga.

Alls eru 52.060 einstaklingar sem eru búsettir hér á landi með ótilgreinda skráningu og hefur þeim fjölgað um 5.748 frá 1. desember 2018 eða um 12,4%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélög þann 1. desember sl.  og samanburð við tölur frá 1. desember 2017 og 2018.

 

Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

 


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar