Þjóðskrá10. janúar 2020

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í desember 2019

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í desember 2019 var 555. Heildarvelta nam 31,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 57,2 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 21,6 milljarðar, viðskipti með eignir í sérbýli 7,9 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,3 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í desember 2019 var 555. Heildarvelta nam 31,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 57,2 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 21,6 milljarðar, viðskipti með eignir í sérbýli 7,9 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,3 milljörðum króna.

Þegar desember 2019 er borinn saman við nóvember 2019 fækkar kaupsamningum um 15,1% og velta minnkar um 11,8%. Í nóvember 2019 var 654 kaupsamningum þinglýst, velta nam 36 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 55 milljónir króna.

Þegar desember 2019 er borinn saman við desember 2018 fjölgar kaupsamningum um 24,4% og velta eykst um 36,3%. Í desember 2018 var 446 kaupsamningum þinglýst, velta nam 23,3 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 52,2 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 5 í desember 2019 eða 1% af öllum samningum. Í nóvember 2019 voru makaskiptasamningar 14 eða 2,3% af öllum samningum. Í desember 2018 voru makaskiptasamningar 8 eða 1,9% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á nóvember 2019 og desember 2019

Nóvember 2019

Desember 2019

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

24.958

503

21.560

412

-13,6%

-18,1%

Sérbýli

7.976

106

7.883

106

-1,2%

0,0%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

3.028

45

2.277

37

-24,8%

-17,8%

Samtals

35.962

654

31.720

555

-11,8%

-15,1%

 

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á desember 2018 og desember 2019

Desember 2018

Desember 2019

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

15.627

336

21.560

412

38,0%

22,6%

Sérbýli

5.785

77

7.883

106

36,3%

37,7%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.866

33

2.277

37

22,1%

12,1%

Samtals

23.278

446

31.720

555

36,3%

24,4%

 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Desember 2018
Nóvember 2019
Desember 2019
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
413
609
518
25,4%
-14,9%
Makaskipti eða lausafé
9
15
8
-11,1%
-46,7%
Makaskipti
8
14
5
-37,5%
-64,3%
Lausafé
1
1
3
-
-
Hlutfall makaskipta
1,9%
2,3%
1%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar