Þjóðskrá03. febrúar 2020

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum - febrúar 2020

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 442 á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. febrúar sl.

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 442 á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. febrúar sl. Það sveitarfélag sem kemur næst var Kópavogsbær en þar fjölgaði íbúum um 131 á

sama tímabili. 

Hlutfallslega mest fjölgun í Ásahreppi

Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Ásahrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna tvo mánuði eða um 3,2% en íbúum þar fjölgaði úr 251 í 259 íbúa.  

Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Skútustaðahreppi eða um 3,4%. Þá fækkaði íbúum í 31 sveitarfélagi af 72 á ofangreindu tímabili. 

Fækkun í tveimur landshlutum

Lítilsháttar fækkun varð í tveimur landshlutum, Norðurlandi vestra og á Norðurlandi eystra.

Íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 629 og á Suðurnesjum um 112 en íbúum á Norðurlandi vestra fækkaði um 20 og íbúum á Norðurlandi eystra fækkaði um 26.  

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2018 og 2019.  

Tölurnar styðjast við búsetuskráningu í þjóðskrá.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar