Þjóðskrá13. mars 2020

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í febrúar 2020

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í febrúar 2020 var 611. Heildarvelta nam 30,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 49,8 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 22,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 6,8 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í febrúar 2020 var 611. Heildarvelta nam 30,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 49,8 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 22,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 6,8 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1 milljörðum króna.

Þegar febrúar 2020 er borinn saman við janúar 2020 fækkar kaupsamningum um 21,2% og velta minnkar um 25,9%. Í janúar 2020 var 775 kaupsamningum þinglýst, velta nam 41 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 52,9 milljónir króna.

Þegar febrúar 2020 er borinn saman við febrúar 2019 fjölgar kaupsamningum um 5,3% og velta minnkar um 2,5%. Í febrúar 2019 var 580 kaupsamningum þinglýst, velta nam 31,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 53,7 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 2 í febrúar 2020 eða 0,3% af öllum samningum. Í janúar 2020 voru makaskiptasamningar 9 eða 1,2% af öllum samningum. Í febrúar 2019 voru makaskiptasamningar 9 eða 1,7% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á janúar 2020 og febrúar 2020

Janúar 2020

Febrúar 2020

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

28.160

620

22.622

497

-19,7%

-19,8%

Sérbýli

8.791

113

6.796

90

-22,7%

-20,4%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

4.059

42

981

24

-75,8%

-42,9%

Samtals

41.010

775

30.399

611

-25,9%

-21,2%

 

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á febrúar 2019 og febrúar 2020

Febrúar 2019

Febrúar 2020

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

20.418

437

22.622

497

10,8%

13,7%

Sérbýli

7.636

104

6.796

90

-11,0%

-13,5%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

3.120

39

981

24

-68,5%

-38,5%

Samtals

31.174

580

30.399

611

-2,5%

5,3%

 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Febrúar 2019
Janúar 2020
Febrúar 2020
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
541
733
587
8,5%
-19,9%
Makaskipti eða lausafé
9
10
4
-55,6%
-60%
Makaskipti
9
9
2
-77,8%
-77,8%
Lausafé
0
1
2
-
-
Hlutfall makaskipta
1,7%
1,2%
0,3%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar