Þjóðskrá16. mars 2020

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi í mars 2020

Alls voru 50.309 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi þann 1. mars 2020 og fjölgaði þeim um 965 frá 1. desember 2019.

Alls voru 50.309 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi þann 1. mars 2020  og fjölgaði þeim um 965  frá 1. desember sl.  Á sama tíma fjölgaði íslenskum ríkisborgurum

sem eru búsettir hér á landi um 470 samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.

Pólskum ríkisborgurum sem búsettir eru hér á landi fjölgaði á ofannefndu tímabili um 162 einstaklinga.  Næst mest fjölgun var meðal rúmenskra ríkisborgara eða um 113. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2018, 1. desember 2019 og þann 1. mars 2020.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar