Þjóðskrá17. apríl 2020

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í mars 2020

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í mars 2020 var 612.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í mars 2020 var 612. Heildarvelta nam 33,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 54,5 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 24,2 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7,7 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,4 milljörðum króna.

Þegar mars 2020 er borinn saman við febrúar 2020 fjölgar kaupsamningum um 0,2% og velta eykst um 9,8%. Í febrúar 2020 var 611 kaupsamningum þinglýst, velta nam 30,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 49,8 milljónir króna.

Þegar mars 2020 er borinn saman við mars 2019 fjölgar kaupsamningum um 3,7% og velta eykst um 4,7%. Í mars 2019 var 590 kaupsamningum þinglýst, velta nam 31,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 54 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 3 í mars 2020 eða 0,5% af öllum samningum. Í febrúar 2020 voru makaskiptasamningar 2 eða 0,3% af öllum samningum. Í mars 2019 voru makaskiptasamningar 10 eða 1,8% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á febrúar 2020 og mars 2020

Febrúar 2020

Mars 2020

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

22.622

497

24.199

485

7,0%

-2,4%

Sérbýli

6.796

90

7.738

99

13,9%

10,0%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

981

24

1.437

28

46,4%

16,7%

Samtals

30.399

611

33.373

612

9,8%

0,2%

 

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á mars 2019 og mars 2020

Mars 2019

Mars 2020

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

20.142

444

24.199

485

20,1%

9,2%

Sérbýli

8.753

113

7.738

99

-11,6%

-12,4%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.975

33

1.437

28

-51,7%

-15,2%

Samtals

31.870

590

33.373

612

4,7%

3,7%

 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Mars 2019
Febrúar 2020
Mars 2020
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
557
587
584
4,8%
-0,5%
Makaskipti eða lausafé
12
4
3
-75%
-25%
Makaskipti
10
2
3
-70%
50%
Lausafé
2
2
0
-
-
Hlutfall makaskipta
1,8%
0,3%
0,5%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar