Þjóðskrá28. apríl 2020

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í mars 2020

Í mars 2020 var 35 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 1.964 milljónir króna. Af þessum skjölum voru 10 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði.

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í mars 2020 var 35 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 1.964 milljónir króna. Af þessum skjölum voru 10 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði.

Á sama tíma var 34 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 938 milljónir króna.

Á sama tíma voru 27 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 1.428 milljón króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 1.227 milljónir króna. Af þessum samningum voru 8 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Á sama tíma voru 21 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 671 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 486 milljónir króna.

Meðfylgjandi excel skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

 


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar