Þjóðskrá27. maí 2020

Stofnun hjúskapar og lögskilnaðar í janúar 2020

Samkvæmt skráningu í þjóðskrá stofnuðu 184 einstaklingar til hjúskapar í janúar sl. en 104 einstaklingar skildu.

 
Samkvæmt skráningu í þjóðskrá stofnuðu 184 einstaklingar til hjúskapar í janúar sl. en 104 einstaklingar skildu.

Hjúskapur

Af þeim 184 einstaklingum sem stofnuðu til hjúskapar í janúar mánuði gengu 94 í hjúskap hjá sýslumanni eða 51,2%, 58 giftu sig í Þjóðkirkjunni eða 31,5%,

og 22 einstaklingar gengu í hjúskap í öðru trúfélagi eða 12,0% og loks gengu 10 einstaklingar í hjúskap erlendis.

Skilnaðir

Alls skildu 104 einstaklingar sem eru skráðir í þjóðskrá í nóvember mánuði. Þar af gengu 94 frá lögskilnaði sínum hjá sýslumanni og 10 frá lögskilnaði sínum erlendis. 

Hér má  sjá töflu yfir fjölda einstaklinga sem gengu í hjúskap og skildu á árunum 1990 til 2020. 

Ath. tölurnar byggjast á tilkynningum um lögskilnað og stofnun hjúskapar til Þjóðskrár Íslands. 

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar