Þjóðskrá02. júní 2020

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum - júní 2020

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1.132á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. júní sl. Það sveitarfélag sem kemur næst var Garðabær en þar fjölgaði íbúum um 256 á sama tímabili.

 

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1.132 á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. júní sl. Það sveitarfélag sem kemur næst var Garðabær en þar fjölgaði íbúum um 256 á sama tímabili.

Hlutfallslega mest fjölgun í Mýrdalshrepp

Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Mýrdalshrepp fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna sex mánuði eða um 7,4% en íbúum þar fjölgaði þó aðeins um 53 íbúa. 

Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Svalbarðsstrandarhreppi eða um 5,6%.  Þá fækkaði íbúum í 26 sveitarfélagi af 72 á ofangreindu tímabili.  Á myndinni má sjá hlutfallslegar

breytingar á íbúafjölda sveitafélaga landsins frá 1. desember sl. 

Fækkun í tveimur landshlutum

Lítilsháttar fækkun varð í þremur landshlutum, Vesturlandi, Vestfjörðum og á Norðurlandi eystra. 

Íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 1.723 og á Suðurlandi um 357 en íbúum á Vestfjörðum fækkaði um 19 íbúa og íbúum á Norðurlandi eystra fækkaði um 43.  

Hér má sjá excel töflu yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum þann 1. desember 2018, 1. desember 2019 og þann 1. júní 2020. 

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar