Þjóðskrá03. júlí 2020

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum í júlí 2020

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1.275 á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. júlí sl. Það sveitarfélag sem kemur næst var Garðabær en þar fjölgaði íbúum um 398 á sama tímabili.

 
Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1.275 á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. júlí sl. Það sveitarfélag sem kemur næst var Garðabær en þar fjölgaði íbúum um 398 á sama tímabili. 

Hlutfallslega mest fjölgun í Fljótsdalshreppi

Íbúum Fljótsdalshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna sex mánuði eða um 9,3% en íbúum þar fjölgaði þó aðeins um 8 íbúa eða úr 86 í 94 íbúa.  Íbúum fækkaði

hlutfallslega mest í Svalbarðsstrandarhreppi eða um 5,8%.  Þá fækkaði íbúum í 21 sveitarfélagi af 72 á ofangreindu tímabili. 

Fækkun í tveimur landshlutum

Lítilsháttar fækkun varð í tveimur landshlutum, á Vestfjörðum og á Norðurlandi eystra. Fækkunin á Vestfjörðum nam 0,5% en á Norðurlandi eystra um 0,1%. 

Íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 0,8 % eða um 1.926 íbúa.  Mest hlutfallsleg fjölgun var á Norðurlandi vestra eða um 1,3% eða um 98 íbúa. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2018 og 2019.  

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar