Þjóðskrá04. ágúst 2020

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum í ágúst 2020

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1.503 á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. júlí sl. Það sveitarfélag sem kemur næst var Garðabær en þar fjölgaði íbúum um 473 á sama tímabili.

Breytingar á íbúafjölda eftir sveitarfélögum frá 1. desember 2019

 

 

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1.503 á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. júlí sl. Það sveitarfélag sem kemur næst var Garðabær en þar fjölgaði íbúum um 473 á sama tímabili.

Hlutfallslega mest fjölgun í Fljótsdalshreppi

Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Fljótsdalshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna sex mánuði eða um 11,6% en íbúum þar fjölgaði þó aðeins um 10 íbúa eða úr 86 í 96 íbúa.

Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Reykhólahreppi eða um 7,6%.

Þá fækkaði íbúum í 21 sveitarfélagi af 72 á ofangreindu tímabili.

Fækkun í tveimur landshlutum

Lítilsháttar fækkun varð í tveimur landshlutum, Vestfjörðum og á Norðurlandi eystra. Fækkunin á Vestfjörðum nam 0,8% en á Norðurlandi eystra um 0,1%.

Íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 1,0 % eða 2.382 íbúa .  Mest hlutfallsleg fjölgun var á Suðurlandi um 1,4% eða 433 íbúa.

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2018 og 2019.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar