Þjóðskrá19. ágúst 2020

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í júlí 2020

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkar um 0,5% frá fyrri mánuði.

 

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 200,4 stig í júlí 2020 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,5% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,4% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 2,2%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali. Einnig er hægt að nálgast sömu upplýsingar á talnaefnissíðu ÞÍ.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í júlí 2020.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 834 samningar, sem þinglýst var í júlí 2020. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í júlí 2020 eru því unnar upp úr 648 leigusamningum sem þinglýst var í júlí 2020.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í júlí 2020 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði Stúdíó íbúð 2 herbergja 3 herbergja 4-5 herbergja
Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes 4364 3074 2795 2272
Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar 4606 3173 2512 2401
Kópavogur 4592 3002 2407 2305
Garðabær og Hafnarfjörður 2839 2967 2417 2154
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur 4466 2732 2300 2164
Breiðholt 3752 3081 2624 2236
Kjalarnes og Mosfellsbær - 2602 2629 2244
Suðurnes 3451 2508 1929 1620
Vesturland - 2119 1903 1511
Vestfirðir - - - 944
Norðurland nema Akureyri - 1742 1333 1216
Akureyri - 2359 1853 1808
Austurland - 1569 1540 1429
Suðurland - 2365 1945 1683

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga. 

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar