Þjóðskrá26. ágúst 2020

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í júlí 2020

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði. Í júlí 2020 var 39 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 2.115 milljónir króna.

 

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í júlí 2020  var 39 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 2.115 milljónir króna.

Þar af voru 14 kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 1.348 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 984 milljónir króna.

Á sama tíma var 32 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 1.326 milljónir króna.
Þar af voru 17 kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 665 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 656 milljónir króna.

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar. Einnig er hægt að nálgast gögnin á myndrænan hátt. 

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar