Þjóðskrá31. ágúst 2020

Hvar er ég á kjörskrá? Kosningar á Austurlandi

Opnað hefur verið fyrir uppflettingu kjósenda á kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningar á Austurlandi í september.

Þjóðskrá Íslands hefur opnað fyrir rafrænan aðgang að kjörskrárstofni svo kjósendur geti með einföldum hætti kannað hvort þeir eru skráðir á kjörskrá í sveitarstjórnarkosningum í sameinuðu sveitarfélagi Seyðisfjarðar, Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps og Fljótsdalshéraðs sem fara fram 19. september næstkomandi. Ekki er flett upp í þjóðskrá heldur er flett upp í kjörskrárstofni. Að kjördegi loknum verður lokað fyrir aðgang að uppflettingunni.

Þegar slegin er inn kennitala kemur upp nafn, lögheimili og sveitarfélag. Einnig birtast upplýsingar um kjörstað og kjördeild.

Flutningur lögheimilis eftir viðmiðunardag 29. ágúst, breytir ekki skráningu á kjörskrá.

 

 


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar