Þjóðskrá02. september 2020

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum þann 1. september 2020

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1.801 á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. september sl.

Hlutfallsleg fjölgun íbúa eftir sveitarfélögum frá 1. desember sl.

 
Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1.801 á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. september sl. Það sveitarfélag sem kemur næst var Garðabær en þar fjölgaði íbúum um 558 á sama tímabili. 

Hlutfallslega mest fjölgun í Tjörneshreppi

Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Tjörneshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna níu mánuði eða um 11,1% en íbúum þar fjölgaði þó aðeins um 6 íbúa eða úr 54 í 60 íbúa.
Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Reykhólahreppi um 9,2% og Svalbarðshreppi um 8,9%. 

Þá fækkaði íbúum í 23 sveitarfélagi af 72 á ofangreindu tímabili. 

 

Fækkun í tveimur landshlutum

Lítilsháttar fækkun varð í tveimur landshlutum, Vestfjörðum og á Norðurlandi eystra. Fækkunin á Vestfjörðum nam 0,5% en á Norðurlandi eystra var fækkunin hverfandi eða um 12 íbúa. Íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 1,2 % eða um 2.847 íbúa. 

Mest hlutfallsleg fjölgun var á Norðurlandi vestra eða um 1,4% eða um 100 íbúa. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2018 og 2019.

 

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar