Þjóðskrá18. september 2020

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í ágúst 2020

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í ágúst 2020 var 736.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í ágúst 2020 var 736. Heildarvelta nam 41,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 56,2 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 30,1 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 9 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,3 milljörðum króna.

Þegar ágúst 2020 er borinn saman við júlí 2020 fækkar kaupsamningum um 0,1% og velta minnkar um 0,3%. Í júlí 2020 var 737 kaupsamningum þinglýst, velta nam 41,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 56,3 milljónir króna.

Þegar ágúst 2020 er borinn saman við ágúst 2019 fjölgar kaupsamningum um 40,2% og velta eykst um 51,2%. Í ágúst 2019 var 525 kaupsamningum þinglýst, velta nam 27,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 52,1 milljón króna.

Makaskiptasamningar voru 6 í ágúst 2020 eða 0,8% af öllum samningum. Í júlí 2020 voru makaskiptasamningar 10 eða 1,4% af öllum samningum. Í ágúst 2019 voru makaskiptasamningar 19 eða 3,7% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á júlí 2020 og ágúst 2020

Júlí 2020

Ágúst 2020

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

29.079

592

30.075

605

3,4%

2,2%

Sérbýli

11.060

130

9.046

107

-18,2%

-17,7%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.357

15

2.261

24

66,7%

60,0%

Samtals

41.496

737

41.383

736

0,3%

0,1%

 

 

Tafla 2. Samanburður á ágúst 2019 og ágúst 2020

Ágúst 2019

Ágúst 2020

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

19.211

412

30.075

605

56,6%

46,8%

Sérbýli

7.497

96

9.046

107

20,7%

11,5%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

658

17

2.261

24

243,8%

41,2%

Samtals

27.366

525

41.383

736

51,2%

40,2%

 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Ágúst 2019
Júlí 2020
Ágúst 2020
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
508
722
712
40,2%
-1,4%
Makaskipti eða lausafé
20
11
7
-65%
-36,4%
Makaskipti
19
10
6
-68,4%
-40%
Lausafé
1
1
1
-
-
Hlutfall makaskipta
3,7%
1,4%
0,8%
-
-

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar