Þjóðskrá18. september 2020

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í ágúst 2020

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkar um 0,2% frá fyrri mánuði.

 

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 200,8 stig í ágúst 2020 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,8% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 1,4%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjaliEinnig er hægt að nálgast sömu upplýsingar á talnaefnissíðu ÞÍ.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í ágúst 2020.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 902 samningar, sem þinglýst var í ágúst 2020. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í ágúst 2020 eru því unnar upp úr 714 leigusamningum sem þinglýst var í ágúst 2020.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í ágúst 2020 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði Stúdíó íbúð 2 herbergi 3 herbergi 4-5 herbergi
Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes 4426 3257 2801 2657
Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar 3851 3066 2641 2243
Kópavogur 3157 3027 2526 2112
Garðabær og Hafnarfjörður 4203 2802 2559 2139
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur 3588 2781 2400 2319
Breiðholt 3709 3129 2360 2284
Kjalarnes og Mosfellsbær - 2286 2377 2292
Suðurnes 3997 2524 1751 1470
Vesturland - 1940 - 1445
Vestfirðir - - - 831
Norðurland nema Akureyri - 1644 1584 1111
Akureyri 2950 2399 2030 1950
Austurland - - - -
Suðurland 2593 2514 1585 1396

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga. 

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar