Þjóðskrá06. október 2020

Snjallmenni tekið í notkun hjá Þjóðskrá Íslands

Netspjall Þjóðskrár Íslands hefur verið eflt með innleiðingu snjallmennis sem getur svarð ýmsum spurningum og bent viðskiptavinum á gagnlegar slóðir allan sólarhringinn.

Þjóðskrá Íslands hefur tekið í notkun snjallmenni í netspjalli á vef stofnunarinnar www.skra.is. Snjallmennið getur svarað ýmsum spurningum um starfsemi Þjóðskrár Íslands og bent viðskiptavinum á gagnlegar slóðir. Þessi nýjung er viðbót við þjónustuver Þjóðskrár Íslands og er ætlað að flýta og bæta þjónustu við viðskiptavini með aukinni sjálfvirkni. 

Hægt er að fá samband við ráðgjafa í þjónustuveri milli klukkan  9 og 15 alla virka daga ef snjallmennið getur ekki svarað spurningum viðskiptavina. Utan opnunartíma tekur snjallmennið við fyrirspurnum og svarar eftir fremstu getu en annars tekur það við skilaboðum sem bíða afgreiðslu næsta virka dag.

 



Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar