Fasteignir12. febrúar 2021

Mánaðarleg fasteignavelta í janúar 2021

Þegar janúar 2021 er borinn saman við desember 2020 fækkar kaupsamningum um 28,8% og velta lækkar um 8,1%. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði samningum um 30,7% á milli mánaða og velta lækkaði um 37,7%.

 

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í janúar 2021 samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 967 talsins og var upphæð viðskiptanna um 68,5 milljarðar króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu. Þegar janúar 2021 er borinn saman við desember 2020 fækkar kaupsamningum um 28,8% og velta lækkar um 8,1%. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði samningum um 30,7% á milli mánaða og velta lækkaði um 37,7%.

Fasteignavelta í milljónum króna
Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Heildarvelta í síðasta mánuði
68.611
13.325
31.152
22.526
590
1.018
Þar af höfuðborgarsvæðið
35.994
 8.176  25.780  1.917  43
78
Fjöldi kaupsamninga
Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Kaupsamningar í síðasta mánuði
967
216
650
56
26
19
Þar af höfuðborgarsvæðið
620
90
494
29
2
5

Hægt er að sjá veltu á fasteignamarkaði frá júní 2006 til dagsins í dag í skjali sem Þjóðskrá gefur út þar sem gögnunum er skipt í flokka eftir landshlutum og tegund húsnæðis. Fréttin er birt með þeim fyrirvara um ekki er búið að skanna og skrá alla samninga sem heyra til síðasta mánaðar, tölurnar verða því uppfærðar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar á talnaefnissíðu Þjóðskrár


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar