Fólk25. febrúar 2021

Stofnun hjúskapar og lögskilnaðar - nóvember 2020

Af þeim 136 einstaklingum sem stofnuðu til hjúskapar í nóvember mánuði gengu 78 í hjúskap hjá sýslumanni eða 57,4%.

 
Hjúskapur
Af þeim 136 einstaklingum sem stofnuðu til hjúskapar í nóvember mánuði gengu 78 í hjúskap hjá sýslumanni eða 57,4%, 46 giftu sig í Þjóðkirkjunni eða 33,8%, og 10 einstaklingar gengu í hjúskap í öðru trúfélagi eða 7,4% og loks gengu 2 einstaklingar í hjúskap erlendis.
Ef bornir eru saman ellefu fyrstu mánuðir ársins við síðasta ár þá voru 3.236 einstaklingar skráðir í hjúskap á þessu ári samanborið við 3.721 einstaklinga á síðasta ári. Þetta er 13% fækkun milli ára. 
Skilnaðir
Alls skildu 112 einstaklingar sem eru skráðir í þjóðskrá í maí sl. Þar af gengu 110 frá lögskilnaði sínum hjá sýslumanni og 2 gengu frá lögskilnaði sínum fyrir dómi. 
Hér má sjá lista yfir fjölda einstaklinga sem gengu í hjúskap og skildu á árunum 1990 til 2020. 

Ath. tölurnar byggjast á tilkynningum um lögskilnað og stofnun hjúskapar til Þjóðskrár Íslands.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar