Fólk15. mars 2021

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi - mars 2021

Alls voru 51.616 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. mars 2021 og fjölgaði þeim um 238 frá 1. desember 2020.

 
Alls voru 51.616 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. mars 2021 og fjölgaði þeim um 238 frá 1. desember 2020.  Á sama tíma fjölgaði íslenskum ríkisborgurum sem eru með skráða búsetu hér á landi um 785 einstaklinga.
Pólskum ríkisborgurum fækkaði á ofangreindu tímabili um 138 einstaklinga en litháískum ríkisborgurum fjölgaði um 2 einstaklinga.  

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2019 til 2020 og 1. mars 2021. 

Þessar tölur eru byggðar á skráningu þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar