Fólk09. maí 2021

Skráningar í trú- og lífsskoðunarfélög þann 1. maí 2021

Alls voru 229.629 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. maí síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands.

 
Alls voru 229.629 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. maí síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands. Næst kemur Kaþólska kirkjan með 14.671 meðlimi og Fríkirkjan í Reykjavík með 9.996 meðlimi.
Fjölgun mest í siðmennt og ásatrúarfélaginu
Frá 1. desember 2020 sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt um 143 meðlimi og ásatrúarfélaginu eða um 144 meðlimi. Mest fækkun var í zuism eða um 151 meðlimi og í þjóðkirkjunni um 88 meðlimi. 

Nýtt trúfélag
Nýtt trúfélag var skráð í síðasta mánuði eða ICCI (Islamic Cultural Centre of Iceland) og eru nú 26 meðlimir skráðir í félagið. 

Alls eru 7,7% landsmanna skráð utan trú- og lífsskoðunarfélaga
Alls voru 28.416 einstaklingur skráður utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. maí sl. eða 7,7% landsmanna. Alls eru 55.987 manns með ótilgreinda skráningu eða 15,1%. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum þann 1. maí sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2019 og 2020. 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar