Fasteignir21. maí 2021

Fasteignamarkaðurinn í apríl 2021

Kaupsamningum fækkar um tæp 30% á milli mánaða

 

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í apríl 2021 samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 1.309 og var upphæð viðskiptanna um 66 milljarðar króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu. Þegar apríl 2021 er borinn saman við mars 2021 fækkar kaupsamningum um 29,5% og velta lækkar um 30,3%. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði samningum um 34,7% á milli mánaða og velta lækkaði um 32,7%.

Fasteignavelta í milljónum króna

Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Heildarvelta í síðasta mánuði
66.495
20.730
40.613
2.725
1.040
1.389
Þar af höfuðborgarsvæðið
47.015
 11.156  33.810  1.477  12
561
 Fjöldi kaupsamninga

Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Kaupsamningar í síðasta mánuði
1.309
333
824
73
53
26
Þar af höfuðborgarsvæðið
763
120
603
33
3
4

Hægt er að sjá veltu á fasteignamarkaði frá júní 2006 til dagsins í dag í skjali sem Þjóðskrá gefur út þar sem gögnunum er skipt í flokka eftir landshlutum og tegund húsnæðis. Fréttin er birt með þeim fyrirvara að ekki er búið að skanna og skrá alla samninga sem heyra til síðasta mánaðar, tölurnar verða því uppfærðar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar í fasteignagátt Þjóðskrár


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar