Fasteignir16. júní 2021

Vísitala leiguverðs hækkar um 0,1% frá fyrri mánuði

Lítil hreyfing á leiguverði á milli mánaða

 

 

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 202 stig í maí 2021 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 3,4%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali. Einnig er hægt að nálgast sömu upplýsingar í Fasteignagátt Þjóðskrár.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í maí 2021.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 786 samningar, sem þinglýst var í maí 2021. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í maí 2021 eru því unnar upp úr 635 leigusamningum sem þinglýst var í maí 2021.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í maí 2021 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.


Stúdíó íbúð 2 herbergi 3 herbergi 4-5 herbergi
Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes 4043 3233 2909 2446
Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar 4432 3171 2756 2018
Kópavogur 2638 3384 2540 2461
Garðabær og Hafnarfjörður 4415 2876 2602 2252
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur 3534 2780 2659 2161
Breiðholt 4016 2726 2338 2129
Kjalarnes og Mosfellsbær - 2564 2502 2100
Suðurnes 2911 2522 1989 1599
Vesturland - 1834 1732 1797
Vestfirðir - - - -
Norðurland nema Akureyri - 2115 1684 1226
Akureyri 2797 2298 2041 1660
Austurland - 1977 1637 -
Suðurland 2687 2070 2158 1461

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga. Einnig er hægt að nálgast sömu upplýsingar í Fasteignagátt Þjóðskrár.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar