Fólk02. júlí 2021

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum í júlí 2021

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 760 á tímabilinu frá 1. desember 2020 til 1. júlí sl. og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði um 530 á sama tímabili og íbúum Akureyrarbæjar um 137 íbúa.

 
Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 760 á tímabilinu frá 1. desember 2020 til 1. júlí sl. og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði um 530 á sama tímabili og íbúum Akureyrarbæjar um 137 íbúa. 
Hins vegar hefur þeim sem eru skráðir með búsetu í Hafnarfirði fækkað um 234 og íbúum á Seltjarnarnesi  um 51 íbúa. 

Hlutfallslega mest fjölgun í Helgafellssveit
Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Helgafellssveit fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna fjóra mánuði eða um 15,4% en íbúum þar fjölgaði um 10 íbúa.  Næst kemur Árneshreppur með 
7,5% fjölgun en íbúum í hreppnum fjölgaði einungis um 3 íbúa. 

Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Eyja- og Miklaholtshreppi um 13,3% og Ásahreppi um 5,5%.  Þá fækkaði íbúum í 26 sveitarfélögum af 69 á ofangreindu tímabili.  

Fjölgun í öllum landshlutum
Íbúum fjölgaði í öllum landshlutum. Hlutfallslega mest á Austurlandi eða um 1,1% og á Suðurlandi um 1,0%.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2019 og 2020.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar