Fólk09. júlí 2021

Skráningar í trú- og lífsskoðunarfélög í júlí 2021

Alls voru 229.642 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. júlí síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands og hefur skráðum í þjóðkirkjuna fækkað um 75 síðan 1. desember sl.

 
Alls voru 229.642 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. júlí síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands og hefur skráðum í þjóðkirkjuna fækkað um 75 síðan 1. desember sl. 
Næst kemur Kaþólska kirkjan með 14.699 meðlimi og Fríkirkjan í Reykjavík með 10.009 meðlimi.

Fjölgun mest í ásatrúarfélaginu
Frá 1. desember 2020 sl. hefur fjölgunin verið mest í ásatrúarfélaginu um 215 meðlimi og í siðmennt um 192 meðlimi. Mest fækkun var í zuism eða um 165 meðlimi.  

Alls voru 28.655 einstaklingur skráður utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. júlí sl. eða 7,7% landsmanna. Alls eru 56.755 manns með ótilgreinda skráningu eða 15,3%. 

Hér má sjá töflu
 yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum þann 1. júlí sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2019 og 2020. 
 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar