Fólk02. september 2021

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum í september 2021

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1.505 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2020 til 1. september sl. og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði um 604 á sama tímabili. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á umræddu tímabili um 278 íbúa.

 
Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1.505 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2020 til 1. september sl. og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði um 604 íbúa á sama tímabili.  Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á umræddu tímabili um 278. 
Hins vegar hefur þeim sem eru skráðir með búsetu í Hafnarfirði fækkað um 78 og íbúum á Seltjarnarnesi  um 15. 

Hlutfallslega mest fjölgun í Helgafellssveit
Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Helgafellssveitar fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna níu mánuði eða um 23,1% en íbúum þar fjölgaði um 15 íbúa.  Næst kemur Hörgársveit með 8,2% fjölgun en íbúum í sveitarfélaginu fjölgaði um 53. 

Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Eyja- og Miklaholtshreppi um 15,8% og Skorradalshreppi um 10,8%.  Þá fækkaði íbúum í 22 sveitarfélögum af 69 á ofangreindu tímabili.  

Fjölgun í öllum nema einum landshluta 
Íbúum fjölgaði í öllum landshlutum nema norðurlandi vestra en þar fækkaði íbúum um einn einstakling. Hlutfallslega mest var fjölgunin á Suðurlandi eða um 2,4% og á Suðurnesjum um 1,8%.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2019 og 2020.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar