Þjóðskrá23. september 2021

Hvar átt þú að kjósa?

Rafrænn aðgangur að kjörskrárstofni er opinn fram að kjördegi þannig að kjósendur geti athugað með einföldum hætti hvort og hvar þeir eru skráðir á kjörskrá.

Rafrænn aðgangur að kjörskrárstofni er opinn fram að kjördegi svo kjósendur í komandi Alþingiskosningum geti með einföldum hætti kannað hvort þeir eru skráðir á kjörskrá í kosningunum 25. september næstkomandi. Ekki er flett upp í þjóðskrá heldur er flett upp í kjörskrárstofni. Að kjördegi loknum verður lokað fyrir aðgang að uppflettingunni.

Þegar slegin er inn kennitala kemur upp nafn, lögheimili og sveitarfélag. Einnig birtast upplýsingar um kjörstað og kjördeild.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar