Þjóðskrá24. september 2021

Símavakt á kjördag 25. september

Þjóðskrá verður með símavakt á milli 10 og 22 á kjördag 25. september þegar kosningar til Alþingis fara fram.

Laugardaginn 25. september þegar kosningar til Alþingis fara fram verður Þjóðskrá með símavakt á milli kl. 10 og 22 þar sem meðal annars verða veittar upplýsingar um skráningu á kjörskrá. Símanúmerið er 515-5300. Einnig má hafa samband með tölvupósti á kosningar@skra.is.

Ýmsar gagnlegar upplýsingar um kosningarnar, svo sem upplýsingar um kjörstaði og utankjörfundaratkvæðagreiðslu, er að finna á kosningavef stjórnarráðsins.

Einstaklingar geta svo flett upp hvar þeir eigi að kjósa á vef Þjóðskrár Íslands. 


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar