Fólk08. október 2021

Skráningar í trú- og lífsskoðunarfélög í október 2021

Alls voru 229.623 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. október skv. skráningu Þjóðskrár Íslands og hefur skráðum í þjóðkirkjuna fækkað um 94 einstaklinga síðan 1. desember sl.

 
Alls voru 229.623 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. október  skv. skráningu Þjóðskrár Íslands og hefur skráðum í þjóðkirkjuna fækkað um 94 einstaklinga síðan 1. desember sl. 
Næst fjölmennasta trúfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.709 skráða  meðlimi og Fríkirkjan í Reykjavík með 10.040 meðlimi.

Fjölgar mest í Siðmennt

Frá 1. desember 2020 sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 334 meðlimi og í Ásatrúarfélaginu um 311 meðlimi. Mest fækkun var í Zuism eða um 225 meðlimi.  

Nýtt trúfélag

Nýtt trúfélag var skráð í trúfélagsskráningu þjóðskrár en það er Menningarfélag gyðinga. Nú eru 38 meðlimir skráðir í söfnuðinn. Hins vegar var menningarsetur múslima á Íslandi afskráð.

Alls eru nú 53 trú- og lífsskoðunarfélög skráð. 

Alls voru 29.027 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. október sl. eða 4,6% landsmanna.  

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum þann 1. október sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2019 og 2020. 


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar