Fasteignir22. nóvember 2021

Fasteignamarkaðurinn í október 2021

Fasteignavelta lækkar um tæp 13% á milli mánaða.

 

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í október 2021 samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 1.118 og var upphæð viðskiptanna um 59,7 milljarðar króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu. Þegar október 2021 er borinn saman við september 2021 fækkaði kaupsamningum um 12,7% og velta minnkaði um 12,8%. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði samningum um 10,7% á milli mánaða og velta minnkaði um 14,1%.

Fasteignavelta í milljónum króna

Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Heildarvelta í síðasta mánuði
59.683
19.061
34.803
4.178
1.060
584
Þar af höfuðborgarsvæðið
40.617
9.915 27.457 2.972 178
96

Fjöldi kaupsamninga

Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Kaupsamningar í síðasta mánuði
1.118
286
687
94
33
18
Þar af höfuðborgarsvæðið
648
100
477
60
6
5

Hægt er að sjá veltu á fasteignamarkaði frá júní 2006 til dagsins í dag í skjali sem Þjóðskrá gefur út þar sem gögnunum er skipt í flokka eftir landshlutum og tegund húsnæðis. Fréttin er birt með þeim fyrirvara að ekki er búið að skanna og skrá alla samninga sem heyra til síðasta mánaðar, tölurnar verða því uppfærðar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar í fasteignagátt Þjóðskrár


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar