Þjóðskrá21. desember 2021

Eingöngu rafræn þjónusta - afgreiðslur loka

Afgreiðslur Þjóðskrár verða lokaðar frá og með fimmtudeginum 23. desember og verður því eingöngu boðið upp á rafræna afgreiðslu mála.

Afgreiðslur Þjóðskrár verða lokaðar frá og með fimmtudeginum 23. desember og verður því eingöngu boðið upp á rafræna afgreiðslu mála. Er þetta gert vegna yfirstandandi faraldurs (Covid-19). Þjóðskrá tilkynnir um leið og breytingar verða á þessu fyrirkomulagi.

Fyrir þá sem eiga eftir að tilkynna flutning til landsins erlendis frá eða fyrir önnur mál þá er viðskiptavinum bent á netspjall á vefsíðu okkar www.skra.is eða að hafa samband við þjónustuver á skra@skra.is eða í síma 515-5300.

Undanþága frá auðkenningu

Þar sem afgreiðslur Þjóðskrár eru nú lokaðar vegna COVID-19 (Kóróna-veirunnar) geta einstaklingar sem flytja til landsins eða óska eftir lögheimilisskráningu hér á landi, ekki mætt og auðkennt sig í eigin persónu líkt og lög gera ráð fyrir. Til að fá lögheimili skráð á Íslandi þarf að senda inn rafrænt flutningstilkynningu á heimasíðu okkar og senda svo afrit af skilríkjum og flugmiða (ef þú ert nýkomin/n til landsins) í tölvupósti á netfangið skra@skra.is. Eins getur verið að frekari gagna verði krafist og haft verður samband ef svo er.

Athugið að þegar afgreiðslur Þjóðskrár opna að nýju þurfa allir sem flytja að mæta í eigin persónu og auðkenna sig í afgreiðslu Þjóðskrár eða á skrifstofu næsta lögregluembættis og framvísa vegabréfi eða öðru löggiltu ferðaskilríki. Sé þetta ekki gert er hætta á flutningurinn til landsins verði afturkallaður.

English version

The receptions of Registers Iceland will be closed from the 23rd of december due to COVID-19 (the Corona-virus). To contact us please use our online services on www.skra.is. Our service center is open and replies to emails (skra@skra.is) as well as phone calls to 515-5300 between 9 am and 3 pm on business days. Registers Iceland will announce as soon as changes will be made to this arrangement.

Exception from personal identification

Whereas Registers Iceland receptions are now closed due to COVID-19 (the Corona-virus), individuals who move to Iceland or apply for registration of legal domicile, will not be able to identify themselves in person. To apply for registration you need to submit an electronic notification of move or application of registration on our website and then you have to send a copy of your passport or travel ID card as well as your flight ticket (if you have just arrived in Iceland) by email to skra@skra.is . Further documents might be needed and Registers Iceland will contact you if that will be the case.

Note that when we open again, you must go to one of our receptions or the nearest police chief office and present your ID documentation. If you fail to do that, there is a risk that the registration will be withdrawn.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar