Fasteignir21. desember 2021

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgasvæðinu hækkar um 17% á ársgrundvelli

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu 795,5 í nóvember 2021 (janúar 1994=100) og hækkar um 0,7% á milli mánaða. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 3,3%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 7,2% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 17,0%. Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

 
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu 795,5 í nóvember 2021 (janúar 1994=100) og hækkar um 0,7% á milli mánaða. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 3,3%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 7,2% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 17,0%.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar. Hægt er að nálgast upplýsingar á um vísitöluna í Fasteignagátt Þjóðskrár.

Öllum eru heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar