Fólk31. desember 2021

Breyting á afhendingarmáta vegabréfa frá áramótum

Reglugerð um íslensk vegabréf hefur verið breytt og þarf að sækja vegabréf á umsóknarstað eða til Þjóðskrár frá og með 1. janúar.

Þann 1. janúar nk., tekur gildi breyting á reglugerð um íslensk vegabréf. Breytingin snýr að afhendingarmáta vegabréfa en frá og með 1. janúar mun Þjóðskrá hætta að senda vegabréf á lögheimili einstaklinga á Íslandi. Við þessa breytingu munu einstaklingar einungis geta sótt vegabréf sín, annað hvort á skrifstofur sýslumannsembætta eða til Þjóðskrár. Þessi breyting er tilkomin vegna athugasemda Persónuverndar um sendingar vegabréfa með almennum bréfpósti.

Áfram geta einstaklingar fengið vegabréf sín send heim ef að búseta er erlendis og verða þau send á uppgefið heimilisfang erlendis með rekjanlegum pósti.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar