Þjóðskrá10. janúar 2022

Skráning í trú - og lífsskoðunarfélög í janúar 2022

Alls voru 229.167 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 9. janúar sl. skv. skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum í þjóðkirkjuna fækkað um 550 einstaklinga síðan 1. desember 2020.

Alls voru 229.167 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 9. janúar sl.  skv. skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum í þjóðkirkjuna fækkað um 550 einstaklinga síðan 1. desember 2020.  

Næst fjölmennasta trúfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.715 skráða og hefur þeim fjölgað um 64 og hefur fjölgað á áðurnefndu tímabili um 0,4%. 

Fjölgað mest í Siðmennt
Frá 1. desember 2020 sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 649 meðlimi eða um 16,1% og í Ásatrúarfélaginu um 441 meðlimi eða um 8,7%.   

Mest hlutfallsleg fjölgun var í Hjálpræðishernum trúfélagi eða um 37,8% en nú eru 175 meðlimir skráðir í félaginu. 

Alls voru 29.221 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga eða 7,8% landsmanna.  

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum þann 9. janúar sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2019 og 2020. 


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar