Fasteignir24. janúar 2022

Fasteignamarkaðurinn 2021

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum fyrir árið 2021 samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 16.030 talsins og var upphæð viðskiptanna um 853 milljarðar króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu.

Fasteignavelta og fjöldi kaupsamninga

 

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum fyrir árið 2021 samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 16.030 talsins og var upphæð viðskiptanna um 853 milljarðar króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu. Þegar árið 2021 er borið saman við árið 2020 fjölgar kaupsamningum um 13,6% og velta hækkar um 23,3%. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgar samningum um 7,3% á milli ára og velta hækkaði um 18,5%.

Fasteignavelta í milljónum króna
 
Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Heildarvelta árið 2021
852.694
235.870
514.742
69.819
14.110
18.170
Þar af höfuðborgarsvæðið
605.132
128.218 421.288  50.162  1.461
4.001
Fjöldi kaupsamninga
 
Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Kaupsamningar árið 2021
16.030
3.708
10.293
1.085
601
343
Þar af höfuðborgarsvæðið
9.558
1.315
7.521
630
51
41

 

Meðalkaupverð

 
Meðalkaupverð í milljónum króna
 
Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Meðalkaupverð árið 2021
53
63
50
64
23
52
Þar af höfuðborgarsvæðið
63
97
56
79
28
97

Hægt er að sjá veltu á fasteignamarkaði frá júní 2006 til dagsins í dag í skjali sem Þjóðskrá gefur út þar sem gögnunum er skipt í flokka eftir landshlutum og tegund húsnæðis. Fréttin er birt með fyrirvara um að ekki er búið að skanna og skrá alla samninga sem heyra til desember mánaðar, tölurnar verða því uppfærðar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar á fasteignagátt Þjóðskrár


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar