Fólk02. febrúar 2022

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum í febrúar 2022

Reykvíkingum hefur fjölgað um 160 íbúa frá 1. desember og Akureyringum um 52 íbúa.

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 160 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2021 til 1. febrúar 2022 og íbúum Garðabæjar fjölgaði um 87 íbúa á sama tímabili.  Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á umræddu tímabili um 52.  

Fjölgar hlutfallslega mest í Fljótsdalshreppi og fækkar mest í Skorradalshreppi

Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Fljótsdalshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna tvo mánuði eða um 3,0% en íbúum þar fjölgaði um 3 íbúa.  

Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Skorradalshreppi um 3,3% og Skaftárhreppi um 3,2%.  Þá fækkaði íbúum í 29 sveitarfélögum af 69 á ofangreindu tímabili.  

Fækkar lítilsháttar í þremur landshlutum

Íbúum hefur fækkað lítilsháttar í þremur landshlutum síðastliðna tvo mánuði. Hlutfallslega mest var fækkunin á Norðurlandi vestra eða um 0,3% eða um 21 íbúa.  íbúum fjölgaði um 0,2% í fjórum landshlutum þar á meðal á höfuðborgarsvæðinu. 

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2019 - 2021.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar