Fólk25. febrúar 2022

Stofnun hjúskapar og lögskilnaðar í nóvember 2021

Af þeim 198 einstaklingum sem stofnuðu til hjúskapar í nóvember mánuði

 
Hjúskapur
Af þeim 198 einstaklingum sem stofnuðu til hjúskapar í nóvember mánuði gengu 96 í hjúskap hjá sýslumanni eða 48,9%, 72 giftu sig í Þjóðkirkjunni eða 36,4% og 26 einstaklingar gengu í hjúskap í öðru trú- eða lífsskoðunarfélagi eða 13,1% og loks gengu 4 einstaklingar 
í hjúskap erlendis.
 
Skilnaðir
Alls skildu 130 einstaklingar sem eru skráðir í þjóðskrá í nóvember sl. Þar af gengu 128 frá lögskilnaði sínum hjá sýslumanni og 2 gengu frá lögskilnaði sínum fyrir dómi. 

Hér má sjá lista yfir fjölda einstaklinga sem gengu í hjúskap og skildu á árunum 1990 til 2021. 

Ath. tölurnar byggjast á tilkynningum um lögskilnað og stofnun hjúskapar til Þjóðskrár Íslands.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar