Fasteignir15. mars 2022

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkar um 2,5% á milli mánaða

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu 844,0 í febrúar 2022 (janúar 1994=100) og hækkar um 2,5% á milli mánaða. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 6,1%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 9,6% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 22,5%.

 
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu 844,0 í febrúar 2022 (janúar 1994=100) og hækkar um 2,5% á milli mánaða. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 6,1%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 9,6% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 22,5%.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar. Hægt er að nálgast upplýsingar á um vísitöluna í Fasteignagátt Þjóðskrár.

Skýring á nafnvirði – 1994 grunnur: Eins og kemur fram í frétt sem birtist á vef Þjóðskrár 21. desember 2021 var skráningu fjármögnunar á kaupsamningum hætt um áramótin 2021-22. Þá var vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu reiknuð út frá nafnvirði kaupsamninga í stað núvirts kaupverðs frá og með febrúar 2022. Fyrir breytingu var gefin út sérstök vísitala nafnverðs sem áfram verður aðgengileg og er birt undir heitinu „Nafnvirði – 1994 grunnur“. Frá og með febrúar 2022 eru breytingar milli mánaða á „Nafnvirði – 1994 grunnur“ og heildarvísitölu höfuðborgarsvæðisins því þær sömu.

Öllum eru heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar