Fasteignir27. apríl 2022

Mánaðarleg fasteignavelta í mars 2022

Velta á fasteignamarkaði hækkar á milli mánaða, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landinu öllu.

 

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í síðasta mánuði samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 1.101 og var upphæð viðskiptanna um 69,7 milljarðar króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu. Þegar mars 2022 er borinn saman við febrúar 2022 fjölgaði kaupsamningum um 18,2% og velta hækkaði um 22,4%. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði samningum um 13,9% á milli mánaða en velta hækkaði um 33,1%. 

Fasteignavelta í milljónum króna

Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Heildarvelta í síðasta mánuði
69.720
19.786
40.206
8.341
633
755
Þar af höfuðborgarsvæðið
50.672
11.054 32.742 6.595 43 239

Fjöldi kaupsamninga

Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Kaupsamningar í síðasta mánuði
1.101
258
690
95
23
35
Þar af höfuðborgarsvæðið
662
94
498
55
1
14

Hægt er að sjá veltu á fasteignamarkaði frá júní 2006 til dagsins í dag í skjali sem Þjóðskrá gefur út þar sem gögnunum er skipt í flokka eftir landshlutum og tegund húsnæðis. Fréttin er birt með þeim fyrirvara að ekki er búið að skanna og skrá alla samninga sem heyra til síðasta mánaðar, tölurnar verða því uppfærðar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar í fasteignagátt Þjóðskrár


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar