Fólk17. maí 2022

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi í maí 2022

Alls voru 56.921 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. maí sl. og fjölgaði þeim um 1.942 frá 1. desember 2021 eða um 3,5%.

 
Alls voru 56.921 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. maí sl. og fjölgaði þeim um 1.942 frá 1. desember 2021 eða um 3,5%.   

Úkraínskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 236,8% frá 1. desember sl. og voru þann 1. maí sl. 805 úkraínskir ríkisborgarar skráðir í þjóðskrá. 
Sömuleiðis hefur verið umtalsverð fjölgun ríkisborgara frá Venesúela eða um 44,4% og eru nú 657 einstaklingar með venesúelskt ríkisfang búsettir hér á landi.  

Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofangreindu tímabili um 317 einstaklinga og voru 21.508 talsins um síðustu mánaðarmót eða 1,5% landsmanna og rúmenskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 202 eða um 7,3%. 

Hér má sjá töflu
 yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2019-2021 og 1. maí sl. 

Þessar tölur eru byggðar á skráningu þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi. 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar